Til baka

    Flotun

    Gengið frá gólffleti svo hægt sé að leggja gólfefni. Tilboð miðast við fermetrafjölda.

    Hvenær er flotun nauðsynleg?

    Flotun er nauðsynleg þegar gólf er ójafnt, þegar búið er að fræsa fyrir gólfhita eða þegar undirbúa þarf yfirborð fyrir nýtt gólfefni eins og flísar, parket, dúk o.fl.

    Hvernig flotum við?

    Við byrjum á að hreinsa og undirbúa yfirborðið. Því næst er grunnað þar á eftir mælum við gólfið, setjum niður hæðarstikur og í beinu framhaldi flotum við.

    Tæknilegar upplýsingar fyrir flotun

    • Heilflotun með mismunandi flotefnum
    • Hágæða flotefni frá viðurkenndum framleiðendum
    • Nákvæm jöfnun með tæknilegum búnaði
    • Nauðsynlegt fyrir nútímastaðla, s.s. stórar flísar, niðurlímt parket o.fl.

    Kostir við flotun

    • Slétt og jafnt gólf
    • Lengri endingartími gólfefnis
    • Betri leiðni fyrir gólfhita
    • Fagleg og hröð vinna

    Tilbúin/n að hefja verkefnið?

    Fáðu ókeypis og skuldbindingarlaust tilboð í dag. Við svörum eins fljótt og auðið er.